Home

Edinburgh // Facebook

Tvennir tónleikar í Edinborg á næstunni!!
17. maí kælir Benni sig niður eftir sólótúr í maí og spilar á Sneaky Pete´s á undan Hjaltalín sem ætla að kíkja í vorheimsókn til Edinborgar.
21. maí er svo loks komið að fyrstu tónleikum Benna Hemm Hemm með nýrri Edinborgarútgáfu af hljómsveitinni – hvar annars staðar en á hinum stórfenglega tónleikastað The Bowery. Á þeim tónleikum leika Owen Williams og Emily Scott ásamt Benna. Eiríkur Orri Ólafsson, sem er fullgildur meðlimur Edinborgarhljómsveitarinnar verður fjarri góðu gamni, því hann verður í rannsóknarleiðangri í Stavangri en hann mun leika með hljómsveitinni á Evróputónleikaferðinni sem fyrirhuguð er í júní.
Að lokum – Benni Hemm Hemm er mættur á Facebook. Tékkið á því ef þið þorið. Þar eru allskonar upplýsingar um tónleika og fleira skemmtilegt, myndir, myndbönd, tónlist og fleira.
Meiri æsispennandi fréttir mjög bráðlega.
****** * ** ** *
** *** * *****
Two shows in Edinburgh coming up!!
On May 17. Benni will cool down after the mentioned solo tour in May and will be performing at Sneaky Pete´s, along with Hjaltalín who are coming for a spring visit to Edinburgh.
On May 21. the Edinburgh version of Benni Hemm Hemm will perform for the first time – and of course it will be at the one and only magnificent Bowery. At that show Owen Williams and Emily Scott will play with Benni. Eiríkur Orri Ólafsson, who is a fully qualified member of the Edinburgh version of Benni Hemm Hemm, will be far away from good fun, because he will be on a scientific expedition in Stavanger. But he will be playing with the band in the Europe tour in June.
Finally – Benni Hemm Hemm is now on Facebook. Check it out if you dare. There are all kinds of information on shows, and there are photos, videos, music etc.
More hot news coming very soon.

« back